Yfirstjórn löggæslumála
(1909280)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
25.09.2019 | 4. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Yfirstjórn löggæslumála Nefndin fjallaði um aðkomu nefndarinnar að málinu út frá eftirlitshlutverki nefndarinnar gagnvart ráðherra og skörun við eftirlitshlutverk allsherjar- og menntamálanefndar, sbr. 2. mgr. 8. tölul. 13. gr. laga um þingsköp Alþingis og 26. gr. sömu laga. Ákvörðun um dagskrár funda var einnig rædd. Á fund nefndarinnar komu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra, Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri og Ragna Bjarnadóttir skrifstofustjóri frá dómsmálaráðuneyti. Gerðu gestir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. |